Verkís verkfræðistofa fagnar 80 ára afmæli á árinu og lýsir af því tilefni upp starfstöðvar sínar á nýjan og spennandi hátt. Leikurinn hófst í Reykjavík í gær en þá varð framhliðin á Suðurlandsbraut 4 að svokölluðum "tómum striga listarinnar" þar sem listamenn sýndu Pixel Art verk og notuðu til þess lýsingu í gluggum.
Verkís er annað árið í röð eitt af framúrskarandi fyrirtækjum á Íslandi. Creditinfo birti í dag, 9.febrúar, lista yfir 244 framúrskarandi fyrirtæki ársins 2011 og er Verkís þar á meðal. Fyrirtækið stenst því styrkleikamat Creditinfo og er í hópi sterkustu fyrirtækja landsins.
Verkís verkfræðistofa fagnar 80 ára afmæli á árinu og mun af því tilefni lýsa upp starfstöðvar sínar á nýjan og spennandi hátt. Við hefjum leikinn í Reykjavík fimmtudaginn 9.febrúar kl.21:30 en þá verður haldin ljósasýning á Suðurlandsbraut 4 til miðnættis, þá tekur við margbreytileg lýsing sem framkallar ýmis konar áhrif og mun lifa áfram í skammdeginu. Á sama tíma verður einnig kveikt á nýstárlegum lampa á gafli Ármúla 6 og er kjörið tækifæri að rölta þangað í leiðinni.
Verkís tók þátt í Framadögum sem haldnir voru í Háskólanum í Reykjavík þann 1.febrúar. Þar var margt um manninn og gaman að hitta framtíð Íslands. Fjölmargir nemendur komu og spjölluðu við okkur og spurðust fyrir um fyrirtækið og hugsanlega sumarvinnu. Af því tilefni viljum við benda á að hægt er að sækja um sumarvinnu með því að smella hér.
Verkís fagnar
80 ára afmæli í ár og af því tilefni verður fréttabréfið Gangverk gefið oftar
út en endranær. Fyrsta tölublað ársins hefur litið dagsins ljós og inniheldur
bæði sögulegar greinar sem og nýjar fréttir.
Þann 12.janúar var nýr leikskóli vígður í Garðabæ en Verkís sá um hljóðvistarhönnun skólans. Leikskólinn Akrar er fjögurra deilda og í honum munu dvelja um 100 börn en grunnflötur hússins er um 814m2
Tillaga frá Verkís varð hlutskörpust í norrænu lýsingarhönnunarkeppninni Nordic Urban Light Design á vegum NUDA (Nordic Urban Design Association), en hanna átti lýsingu hverfis í austurhluta Stavangurs í Noregi. Verkís atti kappi við fjórtán tillögur sem komu víðsvegar að frá norðurlöndunum en samstarfsaðilar Verkís voru arkitektastofurnar Basalt og Landslag.
Lesa meira
Nýlega kom út bók á vegum
Acoustical Society of America um hljóðvistarhönnun 130 leikhúsa í átta löndum,
tvö eru íslensk og sá Verkís um hljóðhönnun þeirra beggja.