Fréttir
Verkís fær viðurkenningu frá Lagnafélagi Íslands
Lagnafélag Íslands veitti viðurkenningar fyrir "Lofsvert lagnaverk 2007" í húsakynnum BYKO að Kauptúni 6 í Garðabæ þann 27. nóv. síðastliðinn. Verkís hf. hlaut þar viðurkenningu fyrir hönnun stýringar brunavarnarkerfa.
Allt frá árinu 1990 hefur Lagnafélag Íslands veitt viðurkenningar fyrir lagnaverk í nýbyggingu á Íslandi, er þykir framúrskarandi í hönnun og uppsetningu. Tilgangur viðurkenninganna er að efla gæðavitund meðal þeirra aðila sem starfa á þessum vettvangi, efla þróun í lagnamálum með bættum vinnubrögðum, vali á lagnaleiðum og lagnaefnum. Síðast en ekki síst er viðurkenningunum ætlað að vera hönnuðum og iðnaðarmönnum hvatning til að afla sér aukinnar menntunar á sviði lagnamála.
Í áliti viðurkenningarnefndar Lagnafélags Íslands vegna Kauptúns 6 segir m.a:
"Öll gerð og frágangur lagna- og loftræstikerfa í nýju verslunarhúsi BYKO er til mikillar fyrirmyndar. Sérstaka athygli vekur fyrirkomulag tæknirýma þar sem séð er fyrir góðu aðgengi að tækjum og búnaði í húsinu. Handverk iðnaðarmanna er allt til fyrirmyndar."


