Fréttir

misl.gatnam.reyk
Mynd 1 af 2
1 2

9/12/08

Einstakt mannvirki

Laugardaginn 29. Nóvember voru opnuð ný mislæg gatnamót á mótum Reykjanesbrautar og Arnarnesvegar.

Þetta eru fyrstu gatnamót sinnar tegundar á Íslandi en þau eru mislæg með hringtorgi yfir Reykjanesbraut

Laugardaginn 29. Nóvember voru opnuð ný mislæg gatnamót á mótum Reykjanesbrautar og Arnarnesvegar.  Þetta eru fyrstu gatnamót sinnar tegundar á Íslandi en þau eru mislæg með hringtorgi yfir Reykjanesbraut. Einnig voru gerð undirgöng fyrir gangandi umferð undir Arnarnesveg  vestan gatnamóta ásamt tilheyrandi stígagerð. Framkvæmdir hófust í febrúar á þessu ári og eru nokkuð sérstök hvað varðar framgang því að umferð var hleypt á þau 6 mánuðum fyrr en áætlað var.  

Verkís hf.  var aðalráðgjafi og bar ábyrgð á hönnunarstjórn verksins, sá um umferðartækni, veghönnun, brúarhönnun og veglýsingu.  Úti og inni arkitektar sáu um útlitshönnun brúa og Landslag sá um landmótun. Aðalverktakar voru Suðurverk hf. og Skrauta ehf. 

Senda grein



Leita á vefnum


Útlit síðu:


Tungumál



Þetta vefsvæði byggir á Eplica