Samningur Háskólans í Reykjavík og Sense ehf. um tækjabúnað í nýbyggingu HR
Háskólinn í Reykjavík hefur samið við Sense ehf. um kaup, forritun og uppsetningu á tækja- og stjórnbúnaði fyrir nýbyggingu skólans..
Háskólinn í Reykjavík hefur samið við Sense ehf. um kaup, forritunog uppsetningu á tækja- og stjórnbúnaði fyrir nýbyggingu skólans í Öskjuhlíð sem verður tekinn í notkun fyrir næsta skólaár. Samningurinn er gerður í kjölfar útboðs sem Verkís hf sá um fyrir Háskólann í Reykjavík, og var Sense þar lægstbjóðandi. Verkís, í samvinnu við HR, sá um þarfagreiningu, hönnun, útboðsgerð, yfirferð tilboða, aðstoð við samningsgerð og mun væntanlega sjá um verkeftirlit.
Um er að ræða stjórnbúnað frá Crestron, skjávarpa frá NEC og miðlægt hljóð- og uppkallskerfi frá Bose og Biamp svo dæmi séu tekin. Verkefnið nær yfir 47 kennslustofur, sex málstofur, tvo fyrirlestrarsali auk fundarherbergja. Undirbúningsvinna er þegar hafin, en uppsetning hefst í vor og verður lokið áður en að kennsla hefst í lok sumars.
Í skólastofum verður hægt að stjórna hljóði, ljósum og skjávarpa í gegnum miðlægan snertiskjá á borði kennara sem auðveldar fyrirkomulag kennslu allverulega. Stjórnbúnaðurinn slekkur sjálfkrafa á sér eftir notkun og sparar því rafmagn og eykur endingu. Tæknimenn skólans geta jafnframt fylgst með búnaði og aðstoðað við notkun í gegnum umsjónarkerfi. Skjáir utan við skólastofur og fundarherbergi sýna svo stundaskrá og gera notendum kleift að taka fundarherbergi frá.

