Hellisheiðarvirkjun
Orkuveita Reykjavíkur ákvað nýlega að seinka gangsetningu næstu áfanga Hellisheiðarvirkjunar. Þannig verður heitavatnsframleiðsla hafin á haustmánuðum 2010 en áður var áformað að hún myndi hefjast haustið 2009. Þá hefur uppsetningu vélasamstæðna 5 og 6 verið frestað um rúmlega hálft ár. Vinna Verkís og annarra ráðgjafarfyrirtækja við Hellisheiðarvirkjun heldur þó áfram, en vegna frestunarinnar verður umfang vinnunnar dregið saman. Verkís hefur með höndum hönnun byggingarmannvirkja og lagna í jörðu, sem og hönnun rafbúnaðar og stjórn- og varnarbúnaðar vélasamstæðna.
Til gamans má geta þess að sá áfangi náðist í desembermánuði síðastliðnum að fimmþúsundasta skjalið var skráð í skjalaskráningu rafbúnaðarhluta Hellisheiðarverkefnisins. Það var Þorsteinn Valsson sem skráði skjalið þann 10. desember og skráningin í gagnagrunninn var þessi: „322-5000-Uppröðun tengibretta í tengiskáp fyrir neyðarlosun +00CTA82“. Teikningaskrá verksins hjá Verkís geymir ennfremur gríðarlegan fjölda færslna, eða um 7.800 talsins.
