Fréttir

5/2/09

Námskeið í gerð áhættumats á vinnustöðum

Verkís kynnir námskeið í gerð áhættumats starfa ætlað stjórnendum, fulltrúum í öryggisnefnd og......

 

Verkís kynnir námskeið í gerð áhættumats starfa ætlað stjórnendum, fulltrúum í öryggisnefnd og öðrum sem starfa að öryggis-og vinnuverndarmálum fyrirtækja og taka þátt í gerð áhættumats fyrir vinnustaðinn.

Hvert námskeið samanstendur af fyrirlestrum og verkefnavinnu og hentar starfsmönnum jafnt minni og stærri fyrirtækja.*1

Einnig getur Verkís haldið slíkt námskeið innan fyrirtækis og aðlagar þá efni þess að þörfum fyrirtækisins.

Möguleiki er að sækja um styrk til námskeiðahalds fyrir starfsmannahópa til ýmissa fræðslu­sjóða og aðstoðar Verkís við styrkumsókn sé þess óskað.

Verkís er viðurkenndur þjónustuaðili sem veitir heildstæða þjónustu á sviði öryggis-og heilbrigðis á vinnustöðum og þar með talið þjónustu við gerð áhættumats og áætlanir um forvarnir.

 

Eftirtalin námskeið verða í boði á komandi mánuðum:

  •      03. mars 2009
  •      02. apríl 2009
  •      05. maí 2009

 

Staður: Ármúli 4-6, 108 Reykjavík

Tími: Frá 08:30-15:30.

Verð: 25.500 kr.

 



Á hverju námskeiði verður farið yfir ýmsa þætti vinnuverndarstarfs m.a.:

  •         Ábyrgð atvinnurekenda, stjórnenda og starfsmanna
  •         Verkefni og ávinningur vinnuverndarstarfs
  •         Greining áhættuþátta í vinnuumhverfi

 

  •         Mat á áhættu
  •         Forvarnir, úrbætur og eftirlit
  •         Áætlanir um forvarnir og heilbrigði
  •         Endurskoðun, eftirfylgni

 



Í verkefnavinnunni eru notuð ýmis hjálpartæki við gerð áhættumats og þátttakendur fá þjálfun í að átta sig á áhættuþáttum í starfsemi eigin fyrirtækis og leita að nauðsynlegum upplýsingum.

Innifalið í námskeiði er; námskeiðsgögn, hádegisverður og kaffiveitingar.

Kennarar á námskeiðinu eru Unnur Jónsdóttir hjúkrunarfræðingur og Valgerður Ásta Guðmundsdóttir matvælafræðingur.

Nánari upplýsingar: Unnur Jónsdóttir, uj@verkis.is, sími: 569 4927 / 893 9316 og

Valgerður Ásta Guðmundsdóttir, asta@syni.is, sími: 512 3386 / 861 3795.

Skráning: Unnur Jónsdóttir, uj@verkis.is



*1 Skv. vinnuverndarlöggjöfinni, ber atvinnurekanda að gera áhættumat fyrir vinnustaðinn og skriflega áætlun um öryggi og

heilbrigði sem marka á stefnu um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustaðnum.

 

Senda grein



Leita á vefnum


Útlit síðu:


Tungumál



Þetta vefsvæði byggir á Eplica