Fréttir

verkis_stafl_2_370

3/3/09

Verkís hf og Starfsafl í samstarf

Starfsafl og Verkís hafa undirritað samstarfsyfirlýsingu um aukna samvinnu á sviði fræðslu og þarfagreiningar fyrir fyrirtæki og starfsmenn þeirra.

 
Yfirlýsingin felur í sér að Verkís hf. getur boðið fyrirtækjum, sem hafa starfsmenn í Flóabandalaginu í sínum röðum, námskeið og þarfagreiningar af ýmsu tagi með það í huga að sækja um styrk til Starfsafls til að kosta fræðsluna fyrir þá starfsmenn.  Ef fyrirtækin hafa starfsmenn innan margra stéttarfélaga þá er sótt um fyrir þann hluta starfsmanna sem er í Flóabandalaginu (Efling, Hlíf, VSFK).  Hver umsókn er metin sérstaklega af stjórn Starfsafls.  Verkís hf sér um gerð umsóknar til Starfsafls fyrir fyrirtækin.
 
Sjá nánari umfjöllun á heimasíðu Starfsafls.
 
 

Senda grein



Leita á vefnum


Útlit síðu:


Tungumál



Þetta vefsvæði byggir á Eplica