Fréttir
Hellisheiðarvirkjun – Hönnunarfundur nr. 150
Ráðgjöf, hönnun og eftirlit vegna Hellisheiðarvirkjunar fyrir Orkuveitu Reykjavíkur er unnin af hópi ráðgjafa...
Ráðgjöf, hönnun og eftirlit vegna Hellisheiðarvirkjunar fyrir Orkuveitu Reykjavíkur er unnin af hópi ráðgjafa sem verið hefur óbreyttur frá því virkjun Nesjavalla hófst á níunda áratug síðustu aldar. Þó hefur orðið sú breyting að hluti fyrirtækjanna sem stóðu að upphaflega hópnum hafa sameinast, þ.e. Rafteikning og Fjarhitun undir VERKÍS og VGK og Rafhönnun undir Mannvit. Mikilvægur liður í vinnu ráðgjafahópsins eru reglulegir fundir hönnunarstjóra, verkefnisstjóra og fulltrúa verkkaupa, sem kallaðir hafa verið hönnunarfundir. Fimmtudaginn 19. febrúar sl. urðu þau tímamót að haldinn var fundur nr. 150 í Hellisheiðarverkinu og var myndin sem hér fylgir tekin af því tilefni. Á myndinni eru,
sitjandi talið frá vinstri:
| Helgi Leifsson | Staðarverkfræðingur OR |
| Claus Ballzus | Verkefnisstjóri ráðgjafahópsins |
| Ingólfur Hrólfsson | Verkefnisstjóri OR |
| Sigurgeir Björn Geirsson | Yfirmaður hönnunar hjá OR |
| standandi talið frá vinstri: | |
| Finnur Kristinsson | Hönnunarstjóri – landslagsarkitektúr |
| Elín Hallgrímsdóttir | Aðstoðar verkefnisstjóri ráðgjafahópsins |
| Jóhann Garðar Einarsson | Hönnunarstjóri – vélbúnaður og vinnslurás |
| Sigurður Guðjónsson | Hönnunarstjóri – byggingar og lagnir í jörðu |
| Snæbjörn Jónsson | Hönnunarstjóri – rafbúnaður og stjórn- og varnarbúnaður vélasamstæðna |
| Ivon S. Cilia | Hönnunarstjóri – arkitektúr |
| Jóhann Þór Magnússon | Hönnunarstjóri – stjórnkerfi og tenging við stjórnstöð OR |
Sigurður Guðjónsson og Snæbjörn Jónsson eru starfsmenn Verkís, en aðrir ráðgjafar eru hjá Mannviti, Landslagi og Tark.
