Fréttir
Jarðvarmavirkjun í Slóvakíu
Þann 10. mars s.l. var undirritaður í Brattslava samningur milli Verkís og Geoterm Košice í Slóvakíu...
Þann 10. mars s.l. var undirritaður í Brattslava samningur milli Verkís og Geoterm Košice í Slóvakíu um forathugun á jarðvarmavirkjun. Geoterm Košice er að mestu í eigu gasfyrirtækisins SPP sem er stærsta fyrirtæki Slóvakíu og annast alla gasdreifingu I Slóvakíu auk þess sem fyrirtækið sér um flutning á gasi frá fyrrum Sovétríkjunum til Mið- og Vestur Evrópu.
Fyrirhuguð jarðvarmavirkjun er skammt frá borginni Košice í austur Slóvakíu. Þar hafa verið boraðar 3 holur um 3.500 m djúpar sem gefa um 125 l/s af 120°C – 130°C heitu vatni. Efnasamsetning jarðhitavökvans veldur talsverðum erfiðleikum við nýtingu hans. Verkefni Verkís er að finna út hvort og þá með hvaða hætti unnt er að nýta jarðvarmann til rafmagnsframleiðslu. Ef það reynist hagkvæmt hyggst SPP setja upp slíkar rafstöðvar víða í Slóvakíu.

Myndin sýnir ræsfund verkefnisins. Á myndinni eru f.v. Sigþór Jóhannesson, Verkís, Jónas Matthíasson, Verkís , Oto Halás jr, SGT (Slovgeoterm, fyrrum starfsmaður Fjarhitunar), Otto Halás, SGT, Vladimir Drozd, SGT, Jaroslav Dvorský, SPP, L´boš Majdán, ENPI, Ján Valko, SPP. Á myndina vantar Peter Mozolák, SPP
