Fréttir

29/6/09

IHA World Congress 2009 á Hótel Nordica

 

Dagana 23.-26. júní 2009 var haldin ráðstefna á vegum Alþjóðlegu 2009ihavatnsaflssamtakanna á Hótel Nordica sem skipulögð var í samstarfi við Landsvirkjun Power.

Alþjóðlegu vatnsaflssamtökin (International Hydropower Association) eru stofnuð af Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna. Meginhlutverk þeirra er að vinna að sjálfbærni vatnsafls í heimi þar sem síaukin þörf er á ódýrri, hreinni og endurnýjanlegri orku. Forstjóri Landsvirkjunar Power, Bjarni Bjarnason, er stjórnarmaður í samtökunum, en meðlimir þeirra eru samtök, stofnanir og einstaklingar frá yfir 80 löndum.

Tilgangur ráðstefnunnar var að ræða um stefnumörkun í vatnsnýtingar-, orkuöflunar- og loftslagsmálum, svo og markaði og fjárfestingar í vatnsorku, þar sem áhersla var lögð á umhverfismál og sjálfbærni nýtingar vatnsafls. Vatnsafl keppir við aðra miður umhverfisvæna kosti, s.s. mikinn fjölda kolaorkuvera sem rísa hvert af öðru í Kína.

Á ráðstefnunni voru fulltrúar frá hliðstæðum samtökum um nýtingu annarra endurnýjanlegra orkulinda s.s. sólarorku og umhverfisverndarsamtökum eins og IUCN og WWF. Hjá þessum aðilum og fleirum kom sterkt fram nauðsyn þess að allir aðilar sem vinna að sjálfbærri nýtingu endurnýjanlegra orkuauðlinda vinni saman að því að auka hlut þeirra í orkubúskap heimsins og vinna þannig gegn hlýnun jarðar. Sjálfbær nýting vatnsorku skiptir þar miklu máli.

Verkís var með kynningarbás með fimm öðrum íslenskum verkfræðistofum, Mannviti, Eflu, Hnit, Almennu verkfræðistofunni og VSÓ, þar sem íslensk verkfræðiráðgjöf við vatnsaflsvirkjanir var kynnt með áherslu á Kárahnjúkavirkjun, en verkfræðingar Verkíss voru leiðandi í hönnunarteymi Kárahnjúkavirkjunar þar sem saman voru komnir íslenskir og erlendir sérfræðingar.

Gestir ráðstefnunnar skoðuðu Kárahnjúkasvæðið en fóru einnig í hefðbundnar ferðir, s.s. hvalaskoðun og kvöldverð í Bláa lóninu.

Sjá nánar:

HA - http://www.hydropower.org/

Landsvirkjun Power – http://www.lvp.is/

IHA World Congress 2009 - http://www.ihacongress.org/

Frétt MBL - http://vasi.mbl.is/frettir.html?flokkur=1&nid=1427158

 

 

Senda grein



Leita á vefnum


Útlit síðu:


Tungumál



Þetta vefsvæði byggir á Eplica