Fréttir

7/7/09

Undirritun samnings milli Verkís og Háskólans í Reykjavík

 

Búið er HRað skrifa undir samning milli Verkís og  Háskólans í Reykjavík um að Verkís annist forritun og uppsetningu á hússtjórnarkerfi (BMS – kerfi, Building Management System) fyrir nýbyggingu Háskólans í Öskjuhlíð. Hlutverk hússtjórnarkerfisins er að auðvelda rekstur hússins.  Það á að tengja saman hin ýmsu  kerfi hússins, s.s. öryggiskerfi, myndeftirlitskerfi,  brunaviðvörunarkerfi, ljósastýringarkerfi, gluggastýringar, gluggatjaldastýringar, hljóð-og myndkerfi, hita-og loftræstikerfi, vatnsúðarakerfi, neyðarlýsingarkerfi og rafdreifikerfi.  Hússtjórnarkerfið á að vaka yfir ástandi þessara kerfa og gefa upplýsingar m.a. um stöðuna, viðvaranir og bilanir.
Stefnt er að verklokum í september 2010.          

 

Senda grein


Leita á vefnum


Útlit síðu:




Þetta vefsvæði byggir á Eplica