Fréttir

28/7/09

Framkvæmdir við tengibyggingu Suðurlandsvegar 1-3, Hellu

Hafnar eru framkvæmdir við uppsteypu tengibyggingar sem tengir Suðurlandsveg 1 og 3 á Hellu.  Tengibyggingin er 4 hæðir, um 300 m2 að grunnfleti eða  alls um 1200 m2...  

 

Hafnar eru framkvæmdir við uppsteypu tengibyggingar sem tengir Suðurlandsveg 1 og 3 á Hellu.  Tengibyggingin er 4 hæðir, um 300 m2 að grunnfleti eða  alls um 1200 m2.  

Neðsta hæðin opnast út á plan norðan við húsið, á þeirri hæð verða verslanir og/eða þjónustufyrirtæki auk almenningssnyrtinga.  Önnur hæðin opnast til suðurs, að þjóðvegi og þar er aðalinngangur hússins, jarðhæð frá suðri.  Á þeirri hæð verður veitingasala og lyfjaverslun ásamt inngangi í matvöruverslun og heilsugæslu í eldri hluta bygginganna.  Á þriðju hæð verða skrifstofurými og forrými ásamt aðalinngangi að skrifstofum Rangárþings ytra, Lífeyrissjóði Rangæinga, Verkalýðsfélagi Suðurlands og tannlækni í eldri hluta bygginganna.  Á fjórðu hæð verða fundarsalir með eldunaraðstöðu.

Gerð var sérstök jarðskjálftagreining á byggingunni, en áður höfðu verið gerðar greiningar á báðum eldri byggingunum.  Gert er ráð fyrir að tengja allar byggingarnar saman, þannig að þær virki sem ein heild gagnvart álagi. 

Hönnun lýsingar tók sérstaklega mið af því að byggingin er áberandi þegar ekið er inn í bæinn.  Þá var sérstaklega farið yfir lóð m.t.t. aðkomu ferðamanna.

Verkís hf. hefur séð um alla verkfræðihönnun s.s. vegna burðarvirkja, lagna, vatnsúðakerfa, raflagna, lýsingar og brunahönnunar.  Arkitektar eru Arkform hf og landslagsarkitektar eru Landslag ehf.  Verktaki uppsteypu er Rauðás ehf.

Meðfylgjandi myndir sýna útlit suðurhliðar ásamt tölvumynd af lýsingu á lóð.

Suðurlandsvegur framhliðS13

Senda grein


Leita á vefnum


Útlit síðu:




Þetta vefsvæði byggir á Eplica