Fréttir
Formleg verklok við Kárahnjúkavirkjun
Formleg verklok við Kárahnjúkavirkjun
Föstudaginn 2. október síðastliðinn bauð Landsvirkjun til verklokahófs í Fljótsdalsstöð í tilefni formlegra verkloka við Kárahnjúkavirkjun. Í sumar hefur verið unnið við síðustu verkþætti verkefnisins og lokafrágang mannvirkja og vinnusvæða.
Við hjá Verkís erum stolt vegna þátttöku okkar í verkefninu en Verkís tók margvíslegan þátt í undirbúningi, hönnun og framkvæmdaeftirliti við virkjunina. Aðalhönnuðir virkjunarinnar, Kárahnjúkar Engineering Joint Venture (KEJV), er félag í eigu fimm íslenskra og erlendra verkfræðistofa þar sem Verkís hafði forystu og sá um verulegan hluta hönnunarinnar. Verkefnisstjóri KEJV var Kristján Már Sigurjónsson verkfræðingur.
Verkís tók einnig þátt í verkeftirliti við Kárahnjúkastíflu og aðrennslisgöng sem aðili að VIJV, samstarfsfyrirtæki innlendra og erlendra verkfræðistofa, en þar fór Yrsa Sigurðardóttir verkfræðingur og rithöfundur framarlega í flokki.
Virkjunin hefur nú verið um tvö ár í rekstri og reynst í alla staði vel og skilar rúmlega því sem reiknað var með við hönnun hennar.
Verkís óskar Landsvirkjun til hamingju með stærstu og glæsilegustu vatnsaflsvirkjun Íslands.
Hér eru að finna tengla þar sem hægt er að fræðast nánar um aðkomu Verkís að Kárahnjúkavirkjun:
Verkís Kárahnjúkar Hydroelectric project 690 MW
Verkís Avalanche defences,, Switchgear house in Fljótsdalur
