Fréttir

6/10/09

Október tileinkaður átaki krabbameinsfélagsiins

Októbermánuður hefur frá árinu 2000 verið helgaður árvekni um brjóstakrabbamein.

Krabbameinsfélagið stendur fyrir sérstakri fræðslu og söfnunarátaki af því tilefni en bleik slaufa er tákn átaksins. Liður í þessu átaki hefur verið að varpa bleiku ljósi á byggingar og vekja þannig athygli á átakinu. Sérfræðingar Verkís í lýsingarhönnun hafa tekið þátt í verkefninu og varpað ljósi á Ráðhús Reykjavíkur, Eldborg í Svartsengi, Orkuveituhúsið og núna er Radison SAS hótelið 1919 baðað bleiku ljósi.  Verkís vill taka þátt í að minna á átakið og af því tilefni munu myndir af þeim byggingum sem við höfum lýst upp með bleiku vera ráðandi á verkis.is í októbermánuði.

 

Senda grein



Leita á vefnum


Útlit síðu:


Tungumál



Þetta vefsvæði byggir á Eplica