Fréttir
Móttaka Bleiku slaufunnar

15/10/09

Verkís styður Krabbameinsfélagið

 

Verkís hf. verkfræðistofa lagði Bleiku slaufunni, söfnunarátaki Krabbameinsfélagsins, lið með því að kaupa 300 slaufur.  Með þessu er fyrirtækið að sýna í verki samfélagslega ábyrgð, sem er eitt af grunngildum fyrirtækisins.

 

Verkís hf. verkfræðistofa lagði Bleiku slaufunni, söfnunarátaki Krabbameinsfélagsins, lið með því að kaupa 300 slaufur.  Með þessu er fyrirtækið að sýna í verki samfélagslega ábyrgð, sem er eitt af grunngildum fyrirtækisins.

 

„Þeim fjármunum sem fást fyrir söluna verður varið til að styðja við leitarstarf Krabbameinsfélagsins og auka árvekni um brjóstakrabbamein. Brjóstakrabbamein er algengasta krabbamein kvenna, og snertir velflesta landsmenn á einhverjum tímapunkti. Okkur er það því mikil ánægja að leggja þessu góða átaki lið,“ segir Sveinn Ingi Ólafsson, framkvæmdastjóri Verkís. Starfsmenn Verkís  eru 300  og fá þeir allir bleika slaufu frá fyrirtækinu, ásamt áminningu um mikilvægi þess að konur þiggi boð leitarstöðvarinnar um krabbameinsleit.

 

Bleikt ljós á 1919

Radisson SAS 1919 HotelVerkís styrkti einnig átakið með aðkomu sinni að hönnun bleiku lýsingarinnar á Radisson SAS Hótel 1919. Guðrún Agnarsdóttir afhenti slaufurnar í húsnæði Krabbameinsfélagsins og tók um leið á móti úrvali ljósmynda af lýsingunni á Hótel 1919.

„Stuðningur Verkís er afar vel þeginn og skiptir miklu máli, bæði öll aðstoðin við lýsingu hótelsins og svo stuðningur með kaupum á Bleiku slaufunni. Það er fyrir velvild og samstöðu fólksins í landinu sem okkur hefur tekist að byggja upp fjölþætta starfsemi Krabbameinsfélagsins, og það er þessi sami stuðningur sem gerir okkur kleift að halda uppi góðri þjónustu þrátt fyrir erfiða efnahagstíma,“ segir Gústaf Gústafsson, markaðs- og fjáröflunarstjóri Krabbameinsfélags Íslands.

Senda grein


Leita á vefnum


Útlit síðu:




Þetta vefsvæði byggir á Eplica