Verkefni Verkís í Karíbahafi
Verkís hefur á þessu ári unnið að tveimur verkefnum á eyjum í Karíbahafinu í samvinnu við franska fyrirtækið CFG.
Dómínika
Fyrrihluta ársins lauk Verkís við forathugun á að reisa 100 – 200 MW jarðgufuvirkjun á eyjunni Dóminíku. Heimamarkaður á Dóminíku er lítill eða 15-20 MW, en í athugun er að leiða rafmagnið um sæstreng til eyjanna Guadeloupe og Martinique
Franska ríkið, Evrópusambandið o.fl. hafa kostað rannsóknir á þessu svæði sem þykja lofa það góðu. Niðurstaða forathugunar Verkís er að verkefnið sé hagkvæmt og nú er unnið að fjármögnun næsta áfanga sem eru rannsóknarboranir.
Guadelooupe
Í litlu sjávarþorpi, Bouillante á frönsku eyjunni Gouadeloupe er 15 MW jarðgufuvirkjun .
Snemma árs 2009 gerðu Verkís og Ísor forathugun niðurdælingu affallsvatns frá virkjuninni. Í kjölfarið var Verkís falið að hanna niðurdælingarveitu og er því verkefni nú að ljúka.
Síðsumars var svo Verkís falið að gera ástandsúttekt á orkuverinu og setja fram tillögur um úrbætur í rekstri. Því verkefni er nú lokið og var skýrslu skilað í byrjun október.
Áformað er að stækka orkuverið í náinni framtíð.
