Verkefni í Slóvakíu
Verkís vinnur að jarðvarmaverkefni í Slóvakíu...
Skammt frá borginni Košice í austur Slóvakíu hafa verið boraðar 3 holur um 3.500 m djúpar sem gefa um 125 l/s af 120°C – 130°C heitu vatni. Efnasamsetning jarðhitavökvans veldur talsverðum erfiðleikum við nýtingu. Eigandi borholnanna, gasfyrirtækið SPP, fól Verkís að kanna hvort og þá með hvaða hætti unnt yrði að nýta jarðvarmann til rafmagnsframleiðslu. Verkís hefur nú lokið þessu verkefni og var niðurstaðan að hagkvæmt er að reisa á svæðinu 2 – 3 MW rafstöð. Er þá tekið mið af því háa verði sem er í boði fyrir umhverfisvæna raforku. Til viðbótar rafmagnsframleiðslunni kemur til álita um 7 MW hitaveita fyrir nágrannaþorpin. Nú er verið að undirbúa næsta áfanga verkefnisins.
