Fréttir

16/11/09

Vistvæn orka í fyrsta sinn í Sisimiut

Rafmagni hleypt á bæinn Sisimiut frá nýrri vatnaflsvirkjun

Vatnsafslvirkjun sem Verkís hannaði tekin í notkun á Grænlandi

 

Í gær var rafmagni hleypt á bæinn Sisimiut frá nýrri 2x7,5 MW virkjun sem Ístak er að reisa á Grænlandi.  Sisimiut er annar fjölmennasti bærinn á Grænlandi.  Verkís sá um hönnun á virkjuninni og tengivirkjum vegna hennar, m. a. jarðgöngum, byggingarvirkjum, vélbúnaði og rafbúnaði.  Framkvæmdir hafa gengið nokkurn vegin snurðulaust fyrir sig og síðan í byrjun september hafa farið fram prófanir á búnaði virkjunarinnar.  Sigmar H. Sigursson frá Verkís hefur verið prófunarstjóri.  Prófanirnar hafa gengið vel og nú um helgina var stór stund hjá íbúum Sisimiut því þeir nutu í fyrsta sinn orkunnar frá virkjuninni.  Í byrjun rekstursins mun virkjunin framleiða á móti díselvélunum sem sáu bænum fyrir orku en smám saman verður slegið af díselvélunum og vatnsaflið tekur við rafmagnsframleiðslunni.  Áætlað er að skila virkjuninni þann 30. nóvember, en það er 6 mánuðum á undan áætlun. Hérna má lesa meira um virkjunina.

IMG_1464100_2379IMG_5553

Senda grein



Leita á vefnum


Útlit síðu:


Tungumál



Þetta vefsvæði byggir á Eplica