Fréttir
Viltu verða Orkubóndi?
Orkubóndinn er nýtt námskeið fyrir þá sem vilja framleiða eigin orku og er opið öllum hvort sem eru einstaklingar, fyrirtæki eða landeigendur. Á námskeiðinu er á tveimur dögum farið yfir m.a. möguleika á nýtingu vatnsorku, vindorku, jarðvarma, varmadælur, sólarorku, lífdísels og metans.
Námskeiðið er þannig uppbyggt að fyrri daginn er fyrirlestrarhald ásamt því að hugmyndum fundarmanna er safnað saman, en seinni daginn er hópavinna leidd af leiðbeinendum þar sem fólki gefst kostur á að leggja fram sínar virkjunarhugmyndir.
Orkubóndinn er samstarfsverkefni Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, Verkís, Orkustofnunar, Iðnaðarráðuneytisins, Mannvits, atvinnuþróunarfélaga og sveitarfélaga víða um land.
Orkubóndinn hefur farið víða nú í haust: Stokkseyri, Húsavík og nú síðast á Ísafirði. Eftir áramót eru framundan námskeið á Egilsstöðum, Höfn, Sauðárkróki, Vestmannaeyjum, Borgarnesi og Reykjavík.
Þann 19. maí verður ráðstefna haldin í Reykjavík þar sem þátttakendur af námskeiðunum koma saman ásamt fagaðilum úr orkugeiranum. Iðnaðarráðherra mun þar veita hvatningarverðlaunin Orkubóndinn.
Sjá einnig.
http://www.nmi.is/impra/namskeid/orkubondinn
