Fréttir
Verkís hannar virkjun á Grænlandi
Virkjun við Ilulissat á vesturströnd Grænlands.
Samið hefur verið við Phil/ISTAK um byggingu vatnsaflsvirkjunar við bæinn Ilulissat á vesturstönd Grænlands. Verkís var ráðgjafi Ístaks við tilboðsgerðina og verður hönnuður virkjunarinnar. Virkjunin verður er 3 x 7,5 MW og undirbúningur framkvæmdanna hefst þegar í stað. Reiknað er með að fyrsta vélin verði gangsett haustið 2012 og verklok verði síðla 2013.
Áður hefur Verkís hannað virkjanir í Qorlortorsuaq og Sisimiut.
