Fréttir
_MG_3774
Mynd 1 af 3
1 2 3

11/2/10

Orkurannsóknasjóður LV – 3 styrkir til Verkís

 Þrjú verkefni á Vatnsorku- og orkuflutningssviði Verkís hlutu styrk.

 

Orkurannsóknasjóður LV úthlutaði í gær styrkjum til rannsóknaverkefna á sviði umhverfis- og orkumála. Í ár bárust 67 umsóknir vegna nýrra verkefna, 16 styrkir voru veittir. Þrjú verkefni á Vatnsorku- og orkuflutningssviði Verkís hlutu styrk.

Lágmarksrennsli í árfarvegum, neðan virkjana- eða veituframkvæmda. Jón Snæbjörnsson, Arnór Þórir Sigfússon og Þorbergur Steinn Leifsson.

Orkutap í vélboruðum vatnsrásum: Samband eðlisfræðilegs hrýfis og reglulegs sandkornahrýfis sannreynt með píputilraunum. Kristín Martha Hákonardóttir og Pálmi Ragnar Pálmason. Verkefnið er unnið í samstarfi við Pöyry Infra Ltd., Sviss.

Sjávarfallavirkjun í Hornafirði. Ólöf Rós Káradóttir, Stefán Bjarnason og Þorvaldur P. Guðmundsson. Verkefnið er unnið í samvinnu við HR, Siglingastofnun Íslands, Bæjarfélagið Höfn í Hornafirði og Nýsköpunarmiðstöð á Höfn í Hornafirði.

Frekari upplýsingar um orkurannsóknarssjóðinn er að finna á heimasíðu Landsvirkjunnar.

Hérna eru fleiri myndir frá afhendingunni.

 

Senda grein


Leita á vefnum


Útlit síðu:




Þetta vefsvæði byggir á Eplica