Fréttir
Umhverfisfaghópur stofnaður innan Verkís
Fimmtudaginn 18. febrúar var haldinn stofnfundur Umhverfisfaghóps Verkís.
Faghópurinn mun leggja áherslu á að auka þekkingu innan Verkís á umhverfismálum í víðum skilningi. Til að byrja með mun hópurinn beina sjónum sínum að vistvænni hönnun. Vistvæn hönnun felur í sér ýmis atriði tengd umhverfismálum svo sem: vistferilsgreiningar, nýtingu auðlinda (orku, vatns, o.fl.), umhverfisstjórnun, úrgangsstjórnun, o.fl. Einnig mun hópurinn leggja áherslu á málefni sem ekki tengjast hönnun beint, svo sem loftlagsmál og líffræðilegan fjölbreytileika.
FSR hefur nú þegar sett auknar kröfur um notkun aðferðafræði tengdri grænni vottun við hönnun og framkvæmd bygginga og augljóst er að vistvæn hönnun er sífellt að koma meira og meira inn á byggingasvið (loftræsing, dagsbirta, val byggingarefna, rafkerfi).
Auknar kröfur á því sviði fela í sér skemmtileg áskorun fyrir alla sem vinna á byggingasviði hvað varðar vinnubrögð og þekkingu. Aðferðafræði sem tengist vistvænni hönnun kallar á aukin samskipti á milli hönnuða, arkitekta, verktaka, eiganda og notenda bygginga með tilliti til umhverfis auk þess sem ráðgjafar verða að vera meðvitundir um áhrif vinnu þeirra á önnur svið.
