Ný sundlaug á Hofsósi

Nýverið var vígð ný og sérlega glæsileg sundlaug á Hofsósi að viðstöddu fjölmenni. Sundlaugin og þjónustuhúsið sem henni fylgir er gjöf þeirra Lilju Pálmadóttur og Steinunnar Jónsdóttur til íbúa Skagafjarðar, en báðar eiga þær rætur í Skagafirðinum.
Sundlauginni var valin staður á sjávarbakka, sunnarlega í þorpinu. Staðsetning og frángangur er þannig að þegar synt er frá suðri til norðurs rennur vatnsflötur laugarinnar saman við hafflötinn með beina stefnu á Drangey.
Verkís hannaði mannvirkið, burðarvirkin og allar lagnir en Sigríður Steinþórsdóttir var arkitekt. Sundlaugin hefur verið tæp tvö ár í byggingu, en það voru þau Ólafur Ragnar Grímsson forseti og Dorrit Moussaieff forsetafrú sem tóku fyrstu skólfustungu að henni í apríl 2008.

