Verkís undirritar viljayfirlýsingu
Sveinn Ingi Ólafsson framkvæmdastjóri undirritaði í morgun fyrir hönd Verkís viljayfirlýsingu með Orkuveitunni og 6 sérfræðifyrirtækjum um samstarf að jarðvarmaverkefnum erlendis.
Orkuveita Reykjavíkur (OR) mun leiða samstarfið sem byggir á yfirlýsingu OR og Mitsubishi Heavy Industries (MHI) um samstarf í jarðhitaverkefnum um víða veröld.
Innan Verkís er mikil þekking á nýtingu jarðvarma og markmiðið með undirrituninni er að selja þessa sérþekkingu á erlendum mörkuðum. Viljayfirlýsingin gerir ráð fyrir að einn eða fleiri aðilar hennar geti unnið með OR að einstökum verkefnum. Um er að ræða almenna yfirlýsingu um samstarf að verkefnum, sem útilokar engan veginn samstarf við aðra aðila á sama sviði.
