Verkís tekur þátt í vatnsaflsvirkjun á Indlandi
Í gær, 27. maí 2010, var undirritaður samningur á milli Om Energy Generation Pvt. Ltd. og Verkís hf. um hönnun og ráðgjöf vegna byggingar 7 MW vatnsaflsvirkjunar í Himachal Pradesh á Indlandi.
Samningurinn á sér nokkurn aðdraganda, fulltrúar Verkís fóru til Indlands og skoðuðu aðstæður á virkjunarstaðnum og unnu að því loknu álitsgerð um fyrirliggjandi hönnun. Verkið verður unnið í nánu samstarfi við indverska verkfræðiráðgjafa.
Á Indlandi eru miklir möguleikar á byggingu lítilla vatnsaflsvirkjana, auk þeirra miklu stórvirkjana sem þar hafa verið reistar og eru í undirbúningi. Samstarf Verkís með mikla reynslu af hönnun vatnsaflsvirkjana á síðustu árum og indverskra aðila með góða þekkingu á indverskum aðstæðum og vinnuferlum er talið geta lagt þung lóð vogaskálar við farsæla lausn verkefnisins.
