Verkís kemur að gangsetningu gaffalgreiningarvélar í Egyptalandi
Verkís hefur ásamt tæknimönnum Altech og Bergen Group Iðntækni þróað búnað til að greina skemmdir í skautgöfflum álvera.
Verkís hefur ásamt tæknimönnum Altech og Bergen Group Iðntækni þróað búnað til að greina skemmdir í skautgöfflum álvera. Nýlega var vél númer 2 gangsett í 245.000 tonna álveri í Nag Hammady í Egyptalandi. Vélin er staðsett í vinnslulínu skautsmiðju álversins og beinir gölluðum skautgöfflum inn á viðgerðarlínu frá Altech. Áður var samskonar vél sett upp í Hollandi og er hún búin að vera í rekstri í um eitt ár.
Aðkoma Verkís að þessu verkefni laut einkum að þróun greiningaraðferða, hönnun stýribúnaðar og iðntölvuforritun.
Mikil áraun er á skautgaffla við notkun í kerjum og við endurnýjun á kolaskautum þeirra. Stammar geta bognað við losun úr kerjunum og tvímelmisklossar milli gaffals og stamma eiga til að rifna á suðusamskeytum. Gaffaltindar bogna vegna mismunandi hitaþanstuðuls í gaffli og kolaskauti, hluti tinda rafgreinist í burtu eða leifar af járnkrögum skautanna sitja eftir á tindum. Allt þetta getur valdið truflunum við endurnýjun á skautum eða minni nýtni í álframleiðslunni. Það er því áríðandi að greina þessar bilanir og bregðast við á réttan hátt. Gaffalgreiningarvélin er hluti af því ferli.
