Verkís er nýr Siemens Solution Partner
Með þessari viðurkenningu er tryggt að Verkís fái reglulega nýjar upplýsingar og þjálfun í tengslum við nýjar vörur og vöruþróun hjá Siemens. Ekki síður tryggir samstarfið að Verkís fær ávallt nýjustu uppfærslur á hugbúnaði og kerfum frá Siemens.
Í vor sendi Verkís fjóra starfsmenn á námskeið hjá Siemens og þreyttu þeir próf í Automation System SIMATIC, Human Machine Interface SIMATIC HMI ogIndustrial Communication SIMATIC NET.
Verkís hefur áratuga reynslu af Siemens búnaði og er að vinna að ýmsum verkefnum þar sem Siemens lausnir eru nýttar. Verkís hefur forritað mikinn fjölda af Siemens iðntölvum fyrir HS-Orku og HS-Veitur einnig hefur Verkís forritað stjórnkerfi fyrir flestar virkjanir HS auk dælustöðva. Verkís er sífellt vinna í verkefnum fyrir HS þar sem þessar iðntölvur koma við sögu og hefur nýlega lokið verkefni í Kenía þar sem þessi búnaður er notaður í stjórnkerfi lítilla virkjana.
