Fréttatilkynning
Ákveðið hefur verið að sameina verkfræðistofurnar VST-Rafteikningu hf, Fjarhitun hf, RT ehf og Fjölhönnun ehf.
Ákveðið hefur verið að sameina verkfræðistofurnar VST-Rafteikningu hf, Fjarhitun hf, RT ehf og Fjölhönnun ehf. Samrunasamningur var undirritaður miðvikudaginn 1. október og í dag var starfsmönnum fyrirtækjanna kynntur samruninn. Samrunaáætlun verður send Samkeppniseftirliti og beðið niðurstöðu þess. Ráðgjöf vegna samrunans veittu LOGOS lögmannsþjónusta og Deloitte hf.
![]() |
|
Sveinn Ingi Ólafsson, framkvæmdastjóri sameinaðs fyrirtækis. |
Allar stofurnar eru rótgrónar og eiga að baki farsælan feril á verkfræðimarkaðnum. VST-Rafteikning varð til vorið 2008 við sameiningu VST sem var stofnað árið 1932 og Rafteikningar sem stofnuð var árið 1965. RT, áður Rafagnatækni hefur starfað frá árinu 1961, Fjarhitun frá árinu 1962 og Fjölhönnun frá árinu 1970.
Með samruna þessara fyrirtækja verður til leiðandi og öflug verkfræðistofa með um 350 starfsmenn. Sameinað fyrirtæki mun veita alhliða ráðgjöf á flestum sviðum verkfræði. Samruninn er tækifæri til sóknar og mun styrkja innviði, gera vinnustaðinn eftirsóknarverðari, auka faglega hæfni og breidd, styrkja fagþekkingu og efla sókn á erlenda markaði. Samskipti við viðskiptavini verða áfram persónuleg og þjónusta verður styrkt með fjölbreyttari lausnum og víðtækari ráðgjöf sem unnin er samkvæmt vottuðu gæðakerfi. Framkvæmdastjóri sameinaðs fyrirtækis verður Sveinn Ingi Ólafsson verkfræðingur.
Nýtt nafn fyrirtækisins verður kynnt á sameiginlegum starfsmannafundi fyrirtækjanna á Hilton Nordica í Reykjavík kl. 17 á morgun.






