VERKÍS - nýtt nafn
Nýtt nafn sameinaðs fyrirtækis var kynnt við hátíðlega athöfn á Hilton hóteli föstudaginn 3. október. Nýja nafnið er Verkís.
![]() |
|
Verkís - Nýtt nafn og merki. |
Nýtt nafn sameinaðs fyrirtækis var kynnt við hátíðlega athöfn á Hilton hóteli föstudaginn 3. október. Nýja nafnið er Verkís.
Aðdragandinn hefur verið langur og hefur fyrirtækið lagt mikla áherslu á fagmennsku og góðan undirbúning við nafnavalið og útfærslu kennimerkis. Mikil eftirvænting hefur ríkt meðal starfsmanna og var sýnilegt að almenn ánægja er með nafnið og ekki síður kennimerkið.
Höfundar merkisins, Jón Ari, teiknari hjá Fíton og nafnsins, Peter Jessen, hjá VST-Rafteikningu, voru heiðraðir sérstaklega.
Helstu ráðgjafar fyrirtækisins við gerð kennimerkis og undirbúning var auglýsingastofan Fíton.
![]() |
|
Höfundur merkisins. Jón Ari ( Fíton ) |
![]() |
|
Höfundur nafnsins. Peter Jessen |
VST-Rafteikning stefnir að því að byrja að starfa undir nýju nafni um miðjan nóvember en sameiningarfyrirtækin um leið og samþykki samkeppnisyfirvalda liggur fyrir.
Það er von VST-Rafteikningar að viðskiptavinir fyrirtækisins taki nýju nafni vel þar sem fagmennska og þarfir viðskiptavina verða áfram höfð að leiðarljósi.
Hægt er að skoða kennimerkið og kynningarmyndband merkis á vefslóðinni www.verkis.is



