Fréttir
Ráðhúsið baðað í bleiku ljósi
Á laugardagskvöldið, þann 11.okt. var Ráðhúsið í Reykjavík baðað bleikum ljóslogum sem léku um Ráðhúsið ...
![]() |
|
Ráðhúsið baðað í bleiku ljósi |
Á laugardagskvöldið, þann 11.okt. var Ráðhúsið í Reykjavík baðað bleikum ljóslogum sem
léku um Ráðhúsið alla helgina. Það var Krabbameinsfélag Íslands sem
stóð fyrir þessum atburði og vildi með honum hvetja Íslendinga til að
sýna samstöðu á þessum tímum þegar allir eiga erfitt og þakka fyrir sýndan
stuðning í árvekniátaki um brjóstakrabbamein.
"Við kveikjum þetta ljós í kvöld sem þakklætisvott og tákn um von. Þá
hvetjum við fólk til að sýna ró og staðfestu á þessum síðustu erfiðu
tímum," sagði Guðrún Agnarsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélags Íslands við
tilefnið. "Við viljum ennfremur þakka íslensku þjóðinni þær góðu viðtökur
sem hún hefur sýnt bleiku slaufunni, við settum okkur það markmið að selja
40.000 slaufur og því marki er næstum náð."
Lýsing Ráðhússins var í höndum nemenda í lýsingarhönnun við Tækniskólann.
Guðjón L. Sigurðsson, lýsingarhönnuður hjá VST-Rafteikningu og kennari
nemendanna segir lýsinguna kjörið verkefni fyrir verðandi ljósahönnuði,
enda er hún mjög metnaðarfull og mikið í hana lagt. "Unnið hefur verið að
hönnun lýsingar og uppsetningu í fimm vikur. Þetta er allt unnið í
sjálfboðavinnu og allur búnaður er fenginn að láni. Við lítum á þetta sem
okkar framlag í baráttunni gegn brjóstakrabbameini og höfum hugsað okkur
að gera þetta að árvissum atburði."
Bleika lýsingin var uppi um helgina en nú hefur Ráðhúsið fengið sinn rétta lit að nýju.

