Fréttir
Ný sundlaug á Hofsósi
VST-Rafteikning hefur umsjón með allri verkfræðihönnun við nýja sundlaug á Hofsósi sem áætlað er að verði tilbúin...
VST-Rafteikning hefur umsjón með allri verkfræðihönnun við nýja sundlaug á Hofsósi sem áætlað er að verði tilbúin til notkunar í nóvember 2009.
Sigríður Sigþórsdóttir arkitekt hjá VA arkitektum verður arkitekt hússins en byggingarframkvæmd verður í höndum verktakafyrirtækisins Sveinbörn Sigurðsson.
Samningur þess efnis var undirritaður síðastliðinn föstudag. Sundlaugin verður gjöf frá þeim Lilju Pálmadóttur og Steinunni Jónsdóttur, en sveitarfélagið mun annast umsjón með verkinu.

