Fréttir
Akureyrarútibú sameinast
Ný starfsstöð á Akureyri
VST-Rafteikning hefur undafarið rekið tvö útibú á Akureyri. Annað á Glerárgötu og hitt að Kaupangi. Þessa dagana standa starfsmenn útibúanna í stórræðum því að á mánudag verður opnað nýtt og sameinað útibú að Austursíðu 2. Heilmikið mál er að flytja saman rótgrónar starfsstöðvar, en VST rak frá árinu 1962 útibú á Akureyri og frá 1984 í núverandi húsnæði. Rafteikning var með útibú frá árinu 2001 að Kaupangi.
Sameining útibúanna á Akureyri er fyrsta sameining starfsstöðva í sameiningarferli VST-Rafteikningar sem átti sér stað í vor. Flutningurinn leggst vel í starfsmenn útibúanna sem þegar eru farnir að vinna saman að verkefnum.
Í nýja útibúinu verða 19 starfsmenn sem munu áfram veita viðskiptavinum góða og persónulega þjónustu. Með sameiningu krafta þessa góða fólks gefst tækifæri til að bæta þjónustuna og auka framboðið því áralöng þekking og reynsla mun sameinast að Austursíðu 2.
