Fréttir

14/11/08

Guðjón L. Sigurðsson lýsingahönnuður hjá VERKÍS tekur þátt í hugmyndasmiðju á vegum PLDA

Guðjón verður í hlutverki leiðbeinanda á hugmyndasmiðjunni fyrir nemendur sem eru að læra lýsingahönnun

Notodden-PosterGuðjón L. Sigurðsson lýsingahönnuður hjá VERKÍS tekur þátt í hugmyndasmiðju á vegum PLDA (Professional lighting Designer´s Association) í Notodden í Noregi sem haldin verður í lok janúar 2009.

Guðjón verður í hlutverki leiðbeinanda á hugmyndasmiðjunni fyrir nemendur sem eru að læra lýsingahönnun og aðra áhugamenn um lýsingu. Verkefnið felur í sér hönnun og uppsetningu lýsingar fyrir skilgreindan stað eða svæði. Hugmyndasmiðjan stendur yfir í viku, lýkur með ráðstefnu og opnunarhátíð en verkefnin munu síðan standa uppi í nokkrar vikur.

Á hugmyndasmiðjum sem þessari á vegum PLDA eru venjulega sex leiðbeinendur sem koma frá mismunandi löndum sem allir hafa ólíka reynslu. Á hugmyndasmiðjunni verða meðlimir samtakanna frá sex löndum; Svíþjóð, Þýskaland, Ítalíu, England, Bandaríkin og síðan Guðjón frá Íslandi. Guðjón hefur reynslu af lýsingahönnun við svipaðar aðstæður og eru í Noregi, þ.e. í kulda, myrkri og náttúrufegurð og hefur því mikilvæga reynslu fram að færa á smiðjunni.  

Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt eru hvattir til að skoða heimasíðu verkefnisins,  www.winterlightsintelemark.no eða fara inná heimasíðu PLDA www.pld-a.org og kynna sér eldri hugmyndasmiðjur á þeirra vegum www.pld-a.org/29.0.html

 

Hér má fá PDF útgáfu að plaggatinu



Senda grein



Leita á vefnum


Útlit síðu:


Tungumál



Þetta vefsvæði byggir á Eplica