Fróðleikspistlar
Nýjungar í beitingu ISO 9000:2000 staðlanna.
Samantekt.![sult_uti48[1]](/media/eldri/myndir/sult_uti48[1].jpg)
![sult_uti47[1]](/media/eldri/myndir/sult_uti47[1].jpg)
![sult_uti49[1]](/media/eldri/myndir/sult_uti49[1].jpg)
Mikil gagnrýni og jafnvel tortryggni ríkir víða varðandi beitingu ISO 9000 staðlanna. Gagnrýnin byggist fyrst og fremst á því að markmið, eðli, uppbygging og innihald staðlanna er misskilið (viljandi eða óviljandi). Þrátt fyrir það getur ISO 9000 staðlaröðin nýst sem tilvitnunarefni til nýsköpunar og þróunar hjá þeim fyrirtækjum sem stefna að því að ná afburða árangri í starfsemi sinni. Þannig séð má rökstyðja að helsti tilgangur með ISO 9000:2000 staðlafjölskyldunni sé að stuðla að alheimsútbreiðslu altækrar gæðastjórnunar (TQM). Ábyrgð á þessu bera einkum leiðtogar fyrirtækja og sérfræðingar þeirra í gæðamálum sem velja nútímalegar og framsæknar aðferðir gæðastjórnunar í þeirri viðleitni sinni að ná þeim markmiðum sem þeir hafa sjálfir sett og þar með að ná tilgangi staðlanna. Lykilorð í áhrifa- og árangursríkri beitingu ISO 9000 staðlanna eru víðfeðmi, samþætting, samræming, samjöfnun og skerpa & skipulag (e: comprehensive-ness, integration, consistency, focus & alignment).
Gæði og gæðastjórnun í fyrirtæki ætti aðeins að túlka á grundvelli viðskiptaþarfa. Á þann hátt verður það markmið að ná afburða árangri að endanlegu markmiði gæðastjórnunar, gæðastjórnun verður lifandi hluti stjórnunar fyrirtækisins og tilgangur og starfsvenjur sem tengjast frumkvæði og viðhafðar eru í virku gæðaumhverfi verða skýrari. Tilvísunarrammi ISO 9000 staðlanna og viðmið gæðaverðlauna eru vel þekkt og þau má nota sem verkfæri, enda styðja þau hvort annað mjög vel.
Í þessari grein eru kynnt ný almenn sjónarmið varðandi beitingu ISO 9000 staðlanna og stuðst sérstaklega við reynslu og aðferðir sem hafa undanfarin tuttugu ár verið þróaðar og notaðar hjá fremsta fjarskiptafyrirtæki Finna, Sonera fyrirtækinu.

Þýðandi Oddur Eiríksson