DIgSILENT:
|
Til að bæta þjónustuna við viðskiptamenn sína hefur Rafteikning fest kaup á mjög fullkomnum hugbúnaði til útreikninga á stærðum sem máli skipta í raforkukerfum. Hugbúnaðurinn eykur mjög nákvæmni niðurstaðna og gerir kleift að reikna flóknustu viðfangsefni með mikilli nákvæmni. Úrvinnsla verkefna fer þannig fram að fyrst er kerfið sem reikna á byggt upp á myndrænan hátt á skjánum. Síðan er öllum einingum gefið nafn og eiginleikar skilgreindir. Þegar öll gögn eru komin inn er hægt að hefja útreikning á þeim stærðum sem óskað er eftir. Reikniverkið samanstendur af eftirfarandi einingum, en hægt er að bæta fleiri einingum við síðar ef þörf krefur: Skammhlaupsútreikningar: Skammhlaupsafl og skammhlaups- straumur reiknaður fyrir þá punkta sem óskað er eftir. Ennfremur hversu stór hluti straumsins kemur frá hverjum fæðipunkti. Allar gerðir skammhlaups mögulegar, þ.e. þrípóla, einpóla, o.s.frv. Álagsflæðiútreikningar: Álagsflæði miðað við tiltekið álagstilfelli. Svarar spurningum eins og hvaða leið fer álagið, hversu mikið eru strengir, línur og spennar lestaðir, hver er spennan (spennugildi og horn) í hverjum punkti, í hvaða stöðu fara þrepastillar til að jafna spennufall. Aðskilin meðhöndlun á raunafli og launafli. Útreikningar á svipulum (e. transient) viðburðum: Möguleiki á að reikna hvernig kerfið bregst við óvæntum atburðum. Dæmi: Brottfall álags, brottfall framleiðslueiningar og ræsing stórra mótora. Forritið reiknar feril spennu og tíðni með tilliti til tíma. Hér opnast möguleikar á útreikningum sem eru nánast ómögulegir án stuðnings öflugs tölvuforrits. Taka þarf tillit til reglunareiginleika t.d. gangráða og spennustilla og fyrir þurfa að liggja nokkuð nákvæm gögn um t.d. rafala og mótora. Umfangsmikið reikniverk er ástæða þess að slík forrit eru dýr og notkun þeirra krefst nokkurrar kunnáttu. Hér er því um mjög sérhæfða þjónustu að ræða. Útreikningar á stillingum varnarliða m.t.t. valvísi: Hægt er að láta forritið koma með tillögu að stillingum varnarliða þannig að valvís útleysing sé ávallt tryggð. Forritið skilar einnig myndrænni framsetningu, þ.e. straum-tíma grafi. |
Flæði yfirsveiflustrauma (e. harmonic loadflow): Forritið gefur möguleika á að reikna hlutfall yfirsveiflustrauma (og spennu) af heildarstraumi. Aðferðin er sú að meta áhrif t.d. hraðastýringa á mótorum og fleiri tækja sem valda þessu. Hægt að meta áhrif síunarrása.
Mikilvægur eiginleiki forritsins er að unnt er að meta áhrif breytinga jafn óðum. Þannig er t.d. hægt að prófa að tengja eða aftengja strengi, prófa sverari streng eða streng í stað línu og sjá jafnharðan áhrif þess á álagsflæði, skammhlaupsafl o.fl. Einnig hægt að skilgreina viðvaranir fyrir hámörk og lágmörk spennu og álags. Þannig verða teinar gullitaðir ef spenna þeirra fer t.d. upp fyrir 105% málspennu eða niður fyrir 95% málspennu. Á sama hátt verða spennar, strengir og línur rauðlitaðir ef straumur um þessa kerfishluta fer upp fyrir t.d. 80% af málstraumi. Þetta er mjög gagnlegt t.d. við hönnun dreifikerfa. Á markaðnum eru fjölmörg forrit til lausnar á vandamálum sem hér hafa verið tíunduð. Það sem réði vali Rafteikningar á hinum þýska DIgSILENT hugbúnaði var einkum sú staðreynd að framleiðandinn er stór verkfræðistofa sem er óháður aðili, en ekki t.d. framleiðandi ákveðins búnaðar. Ekki spillti fyrir að um Evrópskan búnað er að ræða, en hin Evrópska nálgun við viðfangsefni af þessu tagi stendur flestum Íslendingum nær en Bandarísk. Til dæmis eru allar stærðir í sínum eigin einingum (MW, kV o.s.frv.) en ekki "per unit", eins og oft er hjá Bandaríkjamönnum. Að lokum er vert að minnast þess að forrit eitt og sér er aðeins verkfæri í höndum manna. Við hjá Rafteikningu höfum menntun, þekkingu og reynslu í lausn fjölbreyttra vandamála á sviði greiningar og hönnunar raforkukerfa. Nú höfum við fengið það sem okkur vantaði, nefnilega verkfæri til að geta leyst flóknustu viðfangsefni til hagsbóta fyrir viðskiptamenn okkar. |
