Mælibúnaður fyrir rafafl
|
Verkfræðistofunni Rafteikningu hf. berast árlega allmargar fyrirspurnir um eiginleika rafafls, gæði raforku og hugsanlegan sparnað í orkukaupum. Til þess að geta betur sinnt slíkum fyrirspurnum hefur stofan komið sér upp sérhæfðum mælibúnaði ásamt viðeigandi hugbúnaði fyrir athuganir af þessu tagi. Búnaðurinn samanstendur af eftirfarandi einingum:
|
Sem dæmi má nefna aflmælingu samkvæmt hinum nýja staðli EN 50160 um eiginleika spennu frá dreifiveitum. Í staðlinum er tiltekið innan hvað marka hinir ýmsu eiginleikar skulu vera og yfir hvaða tímabil meðaltöl skulu reiknuð. Rafteikning á einnig fullkominn mælibúnað til að greina spennuform og yfirtíðnir (bjögun). Vandamál vegna bjögunar eru nokkuð algeng en erfitt að greina þau án sérhæfðra mælitækja.
Stórir kaupendur raforku greiða sérstakt gjald í hlutfalli við hæsta meðalafl yfir hverjar 15 mínútur allt árið. Með því að athuga hvernig orkunotkunin dreifist yfir sólarhringinn kemur í ljós við hvaða aðstæður afltoppur myndast og þá má oft hagræða notkuninni þannig að toppurinn lækki án verulegrar röskunar á starfsemi. Sparnaður af þessu getur verið verulegur. Söfnunarbúnaðurinn er mjög hraðvirkur og getur því með réttum nemum skráð hröð merki svo sem hraða hreyfingu (t.d. titring) og snöggar spennu- eða straumbreytingar. MATLAB forritið hentar til hvers kyns talnagreiningar, hönnunar og hermunar svipulla kerfa og grafískrar framsetningar niðurstaðna. |
