Fróðleikspistlar

Mat á gæðum raforku og truflanagreining

hellisheidi_6097[2]hrauneyjar515[1]hus510[2]jarnblendif1846[1]jarnblendif2126[1]krafla_hvefill_blar4[1]krafla_hverfill_nyr[1]krafla_kaplar_hangandi[1]Rafmagnsumhverfið mengast meira og meira með hverju ári. Meðal annars er ástæðan aukin notkun á tíðnibreytum, háhraðarofstýringum, dc-umbreytum, ljósdeyfum, tíðnistýringum, farsímum, talstöðvum og ekki hvað minnst notkun á örgjörvum í öllum mögulegum tækjum.

Það að framleiða tæki sem inniheldur rafeindabúnað og jafnframt tryggja að það sé öruggt í notkun gerir miklar kröfur til aðstöðu og þekkingar á prófunum og mælitækni. Aðeins stærstu framleiðendur hafa möguleika á að prófa sjálf eigin framleiðslu á réttan hátt samkvæmt stöðlum, aðrir leita til sérhæfðra prófunarstofa.

Flestir framleiðendur rafeindabúnaðar hafa lært af reynslunni að búnaðurinn verður að geta unnið í því umhverfi þar sem hann á að vera í notkun. Þetta á því miður ekki við um alla framleiðendur og nýir framleiðendur lenda oft í erfiðleikum. Afleiðingin af þessu er að á markaðinum getur verið búnaður sem er næmur fyrir truflunum og veldur þeim sem hann kaupa bæði kostnaði og leiðindum.

Það er nauðsynlegt að þeir sem íhuga fjárfestingar á rafeindabúnaði, tölvustýringum, tölvukerfum og þessháttar búnaði, hafi þekkingu til að leggja mat á það umhverfi sem búnaðurinn á að vinna í og hvort setja þarf sérstakar kröfur til búnaðarins. Sé þetta mat rétt unnið getur það komið í veg fyrir mikinn kostnað vegna bilana og og lagfæringa eftirá.

Rafteikning hf. hefur á undanförnum árum unnið markvisst að öflun sérhæfðar þekkingar og reynslu í rannsóknum á gæðum raforkunnar, bilana- og truflanaleit í samskipta- og stýribúnaði ýmiskonar ásamt mælitækni varðandi þessa þætti. Ásamt því að vinna að lausn þeirra vandamála sem upp hafa komið hafa starfsmenn sótt námskeið og fyrirlestra erlendis. Þess má geta að Rafteikning hf. á nú orðið gott safn af stöðlum og öðru efni um þessi málefni. Rafteikning hf. hefur unnið að rannsóknum á spennugæðum og truflunum í rafdreifikerfi ýmissa rafveitna og einnig í raf- síma- og stýrikerfum hjá öðrum fyrirtækjum og einstaklingum. Rafteikning hf. tekur meðal annars að sér greiningu truflana í rafkerfum, samtengdum tölvukerfum, stýringum o.fl. Í þessu felst að finna ástæður truflana og leggja upp lausnir. Rafteikning hf vill benda á að í þessum tilfellum hefur það sýnt sig hve mikils virði er að ráðgjöf sé byggð á reynslu og að fullt tillit sé tekið til aðstæðna á hverjum stað. Í þessu sambandi má nefna ráðgjöf varðandi almennt val á búnaði og strengjum, frágang og tengingu á búnaði og lögnum ásamt vali á varnarbúnaði t.d. gagnvart púlsum og öðrum slíkum truflunum.


Eftir Friðrik Alexandersson

Senda grein



Leita á vefnum


Útlit síðu:


Tungumál



Þetta vefsvæði byggir á Eplica