Almennt um rafsegulsvið
![krafla_prentbretti2[1]](/media/eldri/myndir/krafla_prentbretti2%5B1%5D.jpg)
![krafla_maelir[1]](/media/eldri/myndir/krafla_maelir%5B1%5D.jpg)
![krafla_lokahus2[1]](/media/eldri/myndir/krafla_lokahus2%5B1%5D.jpg)
![krafla_ketill[1]](/media/eldri/myndir/krafla_ketill%5B1%5D.jpg)
![krafla_kaplar_hangandi[1]](/media/eldri/myndir/krafla_kaplar_hangandi%5B1%5D.jpg)
Í nútíma umhverfi erum við stöðugt umvafin segulsviðum, rafsviðum og rafsegulbylgjum af mismunandi tíðni og þéttleika t.d. hátíðnibylgjum sem koma frá útvarps- og sjónvarpssendum, farsímum, radarsendum o.fl.
Í iðnaði er rafsegulsvið notað til ýmissa hluta t.d. við hitun efna o.fl. Allir rafalar og mótorar vinna eftir lögmálinu um span í segulsviði. Við lækningar er rafsegulsviðstæknin notuð t.d. við lækningar með örbylgju- og leisertækni. Heima hjá okkur hitum við mat með rafsegulbylgjum o.s.frv.
Hátíðnisvið eins og radar- og örbylgjur geta valdið áhrifum á lífræna þætti í formi hita. Almennt hugsar fólk kannski ekki um að sólarljós er ekkert annað en rafsegulbylgjur. Sólarljósið veldur öflugum áhrifum á lífræna þætti.
Frá upphafi rafmagnsframleiðslu hafa menn trúað því að, vegna lágrar tíðni sviðsins (50 Hz) og jafnframt því að orkuinnihald þess er lágt, þá sé lífrænum vef ekki hætta búin og ekki sé að vænta skaðlegra áhrifa frá segulsviði á þessari tíðni.
Seinnitíma rannsóknir hafa gefið vísbendingar um annað þó ekki liggi fyrir vissa um skaðvænleg áhrif. Samkvæmt niðurstöðum nokkurra rannsókna, ekki allra, er líklegt að jafnvel hlutfallslega veikt svið á krafttíðni (um 50Hz) geti valdið skaða á lífræna þætti við vissar kringumstæður. Spurningin er því enn þessi:
" ERU ÞESSI ÁHRIF SKAÐLEG HEILSU MANNA? "
Vísindamenn hafa enn ekki getað svarað þessari spurningu með því að segja einfaldlega já eða nei, til þess eru rannsóknir of skammt á veg komnar.
Mælingar á raf- og segulsviði
Rafteikning hf. hefur að undanförnu unnið markvisst að öflun sérhæfðra mælitækja og þekkingar á raf- og segulsviði. Ásamt því að vinna að lausn þeirra mála sem upp hafa komið, hafa starfsmenn sótt námskeið og fyrirlestra erlendis þar sem fjallað er um mælitækni og aðferðir til að draga úr dreifingu rafsegulsviðs. Þess má geta að RT á gott safn af stöðlum og öðru efni um þetta málefni.
Rafteikning hf. hefur yfir að ráða sérhæfðum mælitækjum til mælinga á raf- og segulsviði og erum við því tilbúin til að taka að okkur verkefni sem tengjast þessum málaflokki.
Rafteikning hf. hefur á undanförnum árum unnið fyrir nokkrar af stærstu rafveitum landsins við að kortleggja styrk raf- og segulsviði umhverfis línur og spennistöðvar og aðra þá staði sem búast má við mestu raf- og segulsviði. Einnig hefur Rafteikning hf. unnið að mælingum á styrk segulsviðs í vinnuumhverfi ýmissa fyrirtækja, ásamt því að veita ráðgjöf við lagfæringar þar sem þess hefur verið þörf.
Eftir Friðrik Alexandersson
