Snjóflóðavarnir á Flateyri
"Þessa dagana eru að hefjast framkvæmdir við byggingu snjóflóðavarnarvirkja á Flateyri. Tildrög þessara framkvæmda eru hið hörmulega slys síðastliðið haust er snjóflóð féll yfir hluta byggðarinnar og hugarfarsbreyting hvað varðar snjóflóðahættu og snjóflóðavarnir sem varð í landinu í kjölfar þess og snjóflóðsins á Súðavík fyrr á síðasta ári. Varnarvirkin eru hönnuð af Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen hf., í náinni samvinnu við snjóflóðasérfræðinga NGI (Norges Geoteknisk Institutt) í Ósló, sem er meðal þekktustu rannsóknarstofnana heims á sviði snjóflóða. Þar eru stundaðar viðamiklar rannsóknir á eðli og eiginleikum snjóflóða, auk þess sem sérfræðingar hennar hafa mikla reynslu af vali og byggingu snjóflóðavarna fyrir byggðarlög í Noregi og víðar."Hægt er að nálgast greinina hér
