Hjarðarholt í Dölum - Hjarðarholt er fyrrum prestsetur og bær í Laxárdal í Dalasýslu. Kirkjan, sem nú stendur, var vígð árið 1904, krosskirkja úr járnvörðu timbri með háan ferhyrndan turn. Rögnvaldur Ólafsson teiknaði Hjarðarholtskirkju á meðan hann var við nám. Kirkjan er því fyrsta verk fyrsta íslenska arkitektsins. Yfirsmiður var Guðmundur Böðvarsson. Kirkjan er krosslaga með háum turni. Gefinn var út bæklingur með upplýsingum um kirkjuna er hún var endurvígð eftir gagngerar viðgerðir, þar sem hún var færð í upprunalegt horf, 3. nóvember 1996. Biskup Íslands, hr. Ólafur Skúlason, endurvígði kirkjuna.
Hjarðarholtskirkja var helguð Jóni (Jóhannesi) skírara.