Byggingasvið
Byggingasvið
Byggingasvið veitir húsbyggjendum og húseigendum alla tæknilega ráðgjafarþjónustu. Þar er m.a. um að ræða þarfagreiningu, gerð verk- og kostnaðaráætlana, alhliða verkfræðihönnun húsbygginga, verkeftirlit og verkefnastjórn vegna byggingaframkvæmda, en einnig ráðgjöf vegna reksturs og viðhalds mannvirkja.
Sviðið sinnir ráðgjöf á öllum húsbyggingamarkaðnum, þ.e. vegna íbúðarhúsnæðis, atvinnuhúsnæðis, hvers konar íþróttamannvirkja, skólabygginga, heilsugæslu- og sjúkrahúsa auk annarra opinberra bygginga.
Sviðsstjóri Byggingasviðs er Flosi Sigurðsson.
