Byggingasvið

Byggingasvið

Byggingasvið veitir húsbyggjendum, húseigendum og framkvæmdaaðilum með alla tæknilega ráðgjöf sem lýtur að mannvirkjagerð, allt frá undirbúningi til fullkláraðs verks. Þar er m.a. um að ræða þarfagreiningu, gerð verk- og kostnaðaráætlana, alhliða verkfræðihönnun húsbygginga, verkeftirlit og verkefnastjórn vegna byggingaframkvæmda, en einnig ráðgjöf vegna reksturs og viðhalds mannvirkja.

Sviðið sinnir ráðgjöf á öllum húsbyggingamarkaðnum, þ.e. vegna íbúðarhúsnæðis, atvinnuhúsnæðis, hvers konar íþróttamannvirkja, skólabygginga, heilsugæslu- og sjúkrahúsa auk annarra opinberra bygginga.

Einnig sérhæfum við okkur í þjónustu vegna viðhalds og reksturs mannvirkja, orkusparnaðar og vistvænnar hönnunar. Við höfum langa reynslu og mikla sérþekkingu sem nýtist vel fyrir íbúðar- og atvinnuhúsnæði, íþróttamannvirki, skólabyggingar, heilbrigðisstofnanir og aðrar opinberar byggingar.

 

Sviðsstjóri Byggingasviðs er Flosi Sigurðsson.

 

Sviðinu er skipt í fimm deildir, hver með sitt megin fagsvið:

Verkefnastjórnun

Við einbeitum okkur að stjórnun mjög fjölbreyttra verkefna á mismunandi sviðum atvinnulífsins. Við höfum mikla reynslu í að stýra þarfagreiningu og áætlanagerð, s.s. kostnaðar- og verkáætlunum, hönnun, innkaupaferli, eftirlitsverkefnum, fjárfestingarverkefnum auk ýmis konar verkefnaþróun. 

Burðarvirki

Verkís hefur hannað burðarvirkin í mörgum af stærstu og þekktustu mannvirkjum Íslands.  Hér sameinum við áratuga reynslu og nýjungar á sviði burðarvirkja. Með nýtingu nýjustu forrita og aðferða í burðarþolshönnun höfum við markað okkur sess í allra fremstu röð á þessu sviði.

Rafkerfi

Verkís hefur á að skipa sérfræðingum á sviði raflagnahönnunar, greiningu rafkerfa, öryggistæknilegrar hönnunar og hönnunar öryggiskerfa fyrir allar gerðir bygginga. Verkís býður víðtæka ráðgjöf á þessu sviði sem tryggir að hægt sé að öll þjónusta sé fáanleg á einum stað.

Sérkerfi

Verkís er með öfluga sérfræðinga í brunahönnun sem og hönnun á lýsingu, hljóðvist og hússtjórnarkerfum. Verkís hefur tekið þátt í flestum stærstu verkefnum síðustu ára og í forystu á viðkomandi sérfræðisviðum allt frá frumáætlunum til ráðgjafar á byggingarstað.

Lagnir og loftræsing

Verkís hefur víðtæka reynslu og sérfræðiþekkingu í hönnun lagna- og loftræsikerfa, allt frá litlum og einföldum byggingum og upp í stórar og flóknar byggingar sem búnar eru sérhæfðum lagnakerfum.

 

PDF útgáfa

 



Leita á vefnum


Útlit síðu:




Þetta vefsvæði byggir á Eplica