Byggingavirki
Verksvið starfsfólks byggingarvirkisdeildar jarðvarma- og veitusviðs er almenn ráðgjafarþjónusta við byggingar og önnur mannvirki jarðvarmavirkjana og veitna. Starfsfólk deildarinnar eru byggingarverkfræðingar, byggingatæknifræðingar, tækniteiknarar og sérhæft aðstoðarfólk og er hver og einn starfsmaður með haldgóða menntun og mikla reynslu á sínu sviði.
Helstu verkefni sem starfsfólk deildarinnar hefur unnið að á undanförnum árum eru jarðvarmavirkjanir á Hengilsvæðinu, í Svartsengi, á Reykjanesi og við Húsavík og Kröflu ásamt aðkomu að jarðvarmavirkjun í El Salvador og öðrum smærri virkjunum. Jafnframt hafa starfsmenn deildarinnar annast hönnun og ráðgjöf við flestar dælustöðvar, miðlunargeyma, stofnæðar og önnur veitumannvirki Orkuveitu Reykjavíkur, HS Orku og HS Veitna, áður Hitaveita Suðurnesja. Auk verkefna á orkusviði hefur stafsfólk deildarinnar komið að og annast almenn húsbyggingarverkefni eins og við skóla, fjölbýlishús, iðnaðar- og skrifstofuhúsnæði o.s.frv.
Verksvið starfsmanna deildarinnar vegna jarðvarmavirkjana og veitna er m.a. verkefnis- og hönnunarstjórn, burðarþolshönnun bygginga, undirstaða og annarra mannvirkja, brunatæknileg hönnun, hönnun jarðvinnu og vegagerðar, hönnun pípulagna utanhúss, bæði ofan- og neðanjarðar, hönnun borplana, mælingar og allt almennt eftirlit með byggingarframkvæmdum ofangreindra verkþátta.
Til marks um reynslu deildarinnar og fyrirtækisins á innlendum vettvangi á sviði jarðvarmavirkjana þá hefur Verkís annast hönnun og eftirlit við byggingarþátt allra jarðvarmavirkjana á Íslandi fram til þessa, þ.e Nesjavallavirkjun, Hellisheiðavirkjun, virkjun í Svartsengi, Reykjanesvirkjun og Kröfluvirkjun. Jafnframt er unnið að hönnun og undirbúningi við Hverahlíðavirkjun og stækkun Reykjanesvirkjunar. Áætlað afl fyrrgreindra virkjana er um 825 MW í rafafli og um 850 MW í varmaafli.
Deildin er vel búin öllum nauðsynlegum tækja- og hugbúnaði vegna verkefna á sínu sviði.
Starfsmenn eru alls 15. Deildarstjóri er Páll R. Guðmundsson byggingarverkfræðingur.
