Jarðvarma- og veitusvið

Jarðvarma- og veitusvið

 

Hlutur jarðvarmavirkjana í raforkuframleiðslu okkar Íslendinga hefur aukist mjög hin síðari ár.  Árið 2011 er svo komið að uppsett afl  jarðvarmavirkjana er 665 MW af þeim 2450 MW sem uppsett eru í landinu öllu.  Hlutur jarðvarmans er því 26,3 % en var 13,7% árið 2005. Með áformum Landsvirkjunar um aukna raforkuvinnslu á Þeistareykjum og í Bjarnarflagi ásamt virkjunaráformum HS-Orku á Reykjanesi eru líkur á að hlutur jarðvarmans í raforkubúskapnum muni aukast í náinni framtíð.

Flestar þjóðir heims, sem einhverja möguleika hafa á því að nýta jarðhita til orkuframleiðslu munu gera það í enn ríkara mæli en hingað til á komandi árum.  Þetta á ekki síst við þar sem stefnumörkun ríkja miðar að því að auka hlut endurnýjanlegra og umhverfisvænna orkugjafa í orkubúskap sínum. Ef rétt er að málum staðið bera slíkar virkjanir höfuð og herðar yfir aðra virkjunarkosti með tilliti til umhverfisáhrifa.

Verkís hefur yfir að ráða yfirgripsmikilli þekkingu á sviði jarðvarmavirkjana og hefur komið að undirbúningi, hönnun og framkvæmd nær allar jarðvarmavirkjana í landinu.  Þá hafa sérfræðingar fyrirtækisins verið eftirsóttir á erlendri grund vegna sérfræði þekkingar sinnar og munu á komandi árum sækja fram á þeim vettvangi í ríkari mæli en hingað til.

Verkís getur boðið viðskiptavinum sínum heildar lausn við áætlanagerð, hönnun og framkvæmdaeftirlit og nær þjónustan til hönnunar á öllum vél- og rafbúnaði auk hönnunar mannvirkja sem þarf til slíkra virkjana.

Sviðsstjóri Jarðvarma- og veitusviðs er Páll R Guðmundsson.



Leita á vefnum


Útlit síðu:


Tungumálaval




Þetta vefsvæði byggir á Eplica