Rafbúnaður og upplýsingakerfi
Á deildinni Rafbúnaður og upplýsingakerfi starfar hópur fólks sem hefur víðtæka reynslu af vinnu við rafbúnað, stjórn- og varnarbúnað í jarðvarmavirkjunum, jarðvarmaveitum og ýmsum skyldum kerfum.
Hópurinn státar af víðtækri reynslu, en stærstu verkefnin síðustu misserin eru Hellisheiðarvirkjun fyrir Orkuveitu Reykjavíkur og Reykjanesvirkjun fyrir Hitaveitu Suðurnesja og færanlegar 2x2,5 MW gámarafstöðvar fyrir Green Energy Iceland. Á næstunni hefst einnig vinna fyrir Landsvirkjun við hönnun og ráðgjöf fyrir jarðgufuvirkjanir á Norðurlandi Eystra. Þá er einnig nánast samfellt unnið að rekstrarverkefnum í jarðgufuvirkjunum Orkuveitu Reykjavíkur, Hitaveitu Suðurnesja og Landsvirkjunar.Auk þess koma starfsmenn að margvíslegri vinnu á sínu sérsviði við verkefni sem eru á forsjá annarra sviða, aðallega Vatnsorku- og orkuflutningssviðs. Af eldri verkefnum má nefna virkjun HS í Svartsengi, Lúkningu Kröfluvirkjunar, Orkustöðina á Húsavík og endurnýjun gufustöðvarinnar í Bjarnarflagi.
Á deildinni starfar fólk með margvíslega menntun og reynslu og stafsmenn hafa hlotið þjálfun í notkun ýmissa tækja og hugbúnaðar sem nýtist við vinnslu verkefnanna. Í hönnunarvinnunni má nefna DigSilent hugbúnaðinn til greiningar og útreikninga á raforkukerfum og í vinnu við eftirlit og prófanir má nefna sérhæft tæki til prófunar á varnarbúnaði. Deildin starfrækir einnig iðntölvuver til prófunar á hugbúnaði í stýringum og smávinnuverkstæði sem nýtist við ýmis konar viðgerðir og athuganir á tækjabúnaði.
Deildarstjóri er Snæbjörn Jónsson rafmagnsverkfræðingur.
