Veitur
Á veitudeild jarðvarma- og veitusvið Verkís starfa verk- og tæknifræðingar, ásamt tækniteiknurum, sem hafa víðtæka þekkingu á hönnun veitukerfa. Verkís hefur hannað flest hitaveitukerfi landsins þ.m.t. virkjun jarðhitasvæða. Dælustöðvar, stofnæðar, dreifikerfi, dreifistöðvar, miðlunargeyma og hústengingar. Sem dæmi um verkefni á þessu sviði er nær allt hitaveitukerfi Orkuveitu Reykjavíkur, Hitaveita Suðurnesja, Hitaveitan á Akureyri og Hitaveita Akraness og Borgafjarðar.
Verkís hefur einnig víðtæka reynslu af hönnun bæði í bæjum og í tengslum við jarðvarmavirkjanir á háhitasvæðum.
Í veitudeild eru notuð öflug tölvuforrit til að greina og hanna flókin veitukerfi og afkastamikil pípukerfi, bæði fyrir stöðugt og kvikult streymi.
Ennfremur er unnt að reikna viðbrögð veitukerfa við snöggum álagsbreytingum svo sem vegna notkunar slökkvivatns í stórbruna á tilteknum stað o.s.frv.
Ýmis verkefni af svipuðum toga en minni í sniðum eru lagnakerfi í byggingum, t.d. vatnsúðakerfi.
Starfsmenn veitudeildar hafa komið að erlendum verkefnum og má þar t.d. nefna hitaveitu í Galanta í Slóvakíu, en þar sáu starfsmenn veitudeildar um hönnun, útboð, framkvæmdaeftirlit og ræsingu hitaveitunnar. Einnig hafa starfsmenn deildarinnar komið að hitaveituverkefnum í Kína, Tyrklandi og víðar.
Starfsmenn eru alls 12. Deildarstjóri er Dr. Oddur B. Björnsson vélaverkfræðingur.
