Vinnslurásir og vélbúnaður
Vinnslurásar- og vélbúnaðardeild jarðvarmasviðs hefur á að skipa starfsfólki sem hefur mikla reynslu og sérþekkingu á hönnun vélbúnaðar til að nýta jarðhita við framleiðslu rafmagns og fyrir hitaveitur.
Auk þess sinnir starfsfólk deildarinnar öðrum verkefnum við hönnun vélbúnaðar af ýmsu tagi, en í flestum tilvikum er um að ræða búnað sem krefst varma- og straumfræðihönnunar með áherslu á stýri- og reglunartækni.
Burðarþolshönnun skipar einnig stóran sess, enda er hönnun þrýstihylkja og varmaspennuhönnun pípukerfa veigamikill þáttur í hönnun tækjabúnaðar sem þarf við nýtingu jarðhita.
Verkís hefur hannað flest hitaveitukerfi landsins, þ.m.t. dælustöðvar, stofnæðar, dreifikerfi, dreifistöðvar, miðlunargeyma og hústengingar. Sem dæmi um verkefni á þessu sviði er nær allt hitaveitukerfi Orkuveitu Reykjavíkur, Hitaveita Suðurnesja, Hitaveitan á Akureyri og Hitaveita Akraness og Borgafjarðar.
Helstu verkefni sem starfsfólk deildarinnar hefur sinnt á undarnförnum árum eru hönnun vélbúnaðar í Reykjanesvirkjun og í Svartsengi auk þessa að hafa haft með höndum hönnun stjórnstöðva og dælustöðva fyrir hitaveituna á höfuðborgarsvæðinu, á Suðurnesjum og víðar.
Meðal erlendra verkefna má nefna aðkoma að hönnun orkuvera í Kenýa, El Salvador og á Azoreyjum ásamt hönnun hitaveitna í Kína, Galanta í Slóvakíu, Bandaríkjunum og víðar og ráðgjöf fyrir Alþjóðabankann um jarðhitaverkefni í Tyrklandi.
Deildin er vel búin tækjum og hugbúnaði til að greina vandamál sem upp koma við hönnun vélbúnaðar. Þar má nefna sérsniðin burðarþolsfræðiforrit, varma- og straumfræði forrit, forrit til að greina og hanna flókin veitukerfi og afkastamikil pípukerfi, bæði fyrir stöðugt og hvikult streymi auk þess sem deildin hefur yfir að ráða öflugu tölvuforriti til að greina þrýstisveiflur í pípukerfum.
Deildarstjóri er Þorleikur Jóhannesson vélaverkfræðingur.
