Starfsstöðvasvið
Undir Starfsstöðvasviði heyra útibú Verkís á Íslandi; Akranes, Borgarnes, Ísafjörður, Akureyri, Egilsstaðir og Selfoss.
Þjónusta sú sem veitt er í útibúunum tekur til flestra almenna verkfræðiþjónustu á sviði byggingar, vega- og gatnagerðar, fráveitukerfa, útboðsgagna, gerð verk- og kostnaðaráætlana, eftirlit með framkvæmdum, ráðgjöf og verkefnastjórnun við undirbúning framkvæmda.
Útibúin eru misjöfn að stærð og hafi þau ekki sérfræðiráðgjöf innan sinna vébanda sækir það styrk til úrvinnslu sérhæfðra verkefna frá höfuðstöðvum Verkís.
Verkís leggur áherslu á að verkfræðiþjónusta verði sem næst fólkinu á landsbyggðinni og í heimabyggð þess. Útibúin eru nú sex alls og var fyrsta útibúið stofnað árið 1962 á Akureyri og það yngsta árið 2003 á Egilsstöðum. Útibúin byggja á þeim grunni sem upphafsmenn útibúanna ásamt starfsmönnum Verkís lögðu og þeim reynslubanka sem safnað hefur verið í þeim í áranna rás.
Sviðsstjóri Starfsstöðvasviðs er Einar Bjarndal Jónsson.
