Akranes

Akranes

Um útibúið:

Útibú Verkís á Akranesi var stofnað árið 2005 og er það til húsa að Stillholti 16.

Útibússtjóri er Einar Bjarndal Jónsson.

Á Akranesi eru starfsmenn meðal annars menntaðir sem rafiðnfræðingar, byggingarverkfræðingar og tækniteiknarar.

Útibúið veitir alla almenna verkfræðiþjónustu, ráðgjöf og verkefnastjórnun við undirbúning framkvæmda og sinnir eftirliti með framkvæmdum.

Starfsmenn eru með fjölbreytta reynslu og víðtæka þekkingu.

Markaðssvæði:

Verkís á Akranesi þjónar aðallega Akranesi, Hvalfirði og nágrenni en sinnir einnig rafmagnsmálum almennt á Vesturlandi og víðar vegna sérhæfingar í einingahúsum.

Helstu viðfangsefni: 

Helstu viðfangsefni hafa verið almenn raflagnaþjónusta við hvers konar mannvirkjagerð fyrir einingahús, fyrirtæki, sveitarfélög og stofnanir sem og einstaklinga. Einnig hefur verið veitt þjónusta við iðnað á svæðinu.

Meðal helstu verka sem Verkís á Akranesi hefur sinnt má nefna:

  • Einingahús frá Loftorku og Smellinn (ein- og fjölbýli) á Akranesi, í Borgarbyggð, á Reykjavíkursvæðinu og á Suðurnesjum, raflagnahönnun
  • Skýjaborg Hvalfjarðarsveit, stækkun leikskóla, raflagnahönnun
  • Stjórnsýsluhús Hvalfjarðarsveitar, raflagnahönnun
  • Apótek Vesturlands, raflagnahönnun
  • Sjúkrahús og heilsugæslustöð Akranesi, raflagnahönnun
  • Skoðunarstöð Frumherja á Akranesi, raflagnahönnun
  • Nautastöð Bændasamtaka að Hesti í Borgarbyggð, raflagnahönnun
  • Tónlistaskólinn og bókasafnið á Akranesi, raflagnahönnun
  • Fjölbrautaskólinn á Akranesi, raflagnahönnun
  • Þjóðgarðsmiðstöð á Skriðuklaustri og Hellissandi, raflagnahönnun
  • Sjóminjasafnið Hellissandi, raflagnahönnun
  • Þjónustuver og tæknideild Akraneskaupstaðar, raflagnahönnun
  • Landbúnaðarháskólinn Hvanneyri, raflagnahönnun
  • Orkuveita Reykjavíkur, rafhönnun og verkeftirlit
  • Faxaflóahöfn, rafhönnun
  • Elkem Grundartanga, rafhönnun og eftirlit
  • Century Aluminum Grundartanga, rekstur og eftirlit kerfa
  • Sementsverksmiðjan hf., rafhönnun


Leita á vefnum


Útlit síðu:




Þetta vefsvæði byggir á Eplica