Akureyri
Um útibúið
Útibú Verkís á Akureyri var stofnað árið 1962 og er það til húsa að Austursíðu 2, 3.h. (oft nefnt Sjafnarhúsið).
Útibússtjóri er Jónas Karlesson.
Í útibúi Verkís á Akureyri eru 12 starfsmenn, fjórir byggingarverkfræðingar, einn byggingartæknifræðingur, einn rafmagnsverkfræðingur, tveir rafmagnstæknifræðingar og einn rafiðnfræðingur. Aðstoðarmenn eru þrír (teiknun, mælingar og almenn skrifstofustörf).
Útibúið veitir alla almenna verkfræðiþjónustu á sviði burðarvirkja, lagna og loftræsinga, vatnsúðakerfa og rafkerfa, þar á meðal smáspennukerfa og háspennuvirkja, gatnahönnunar og fráveitukerfa, ráðgjafar og verkefnastjórnar við undirbúning framkvæmda og eftirlits með framkvæmdum.
Allir starfsmenn eru heimamenn með fjölbreytta reynslu og þekkingu.
Markaðssvæði
Verkís á Akureyri þjónar aðallega Akureyri og nærliggjandi byggðarlögum. Í nokkrum tilvikum hafa verkefni einnig verið í öðrum landsfjórðungum.
Starfsmenn útibúsins hafa í nokkrum mæli tekið þátt í verkefnum annarra sviða og einnig fengið þaðan aðstoð við einstök verkefni.
Helstu viðfangsefni:
Helstu viðfangsefni hafa verið almenn verkfræðiþjónusta við hvers konar mannvirkjagerð fyrir fyrirtæki, sveitarfélög og stofnanir sem og einstaklinga.
Meðal helstu verka sem Verkís á Akureyri hefur sinnt má nefna:
- Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri, lagna- og loftræsihönnun
- Hitaveita Akureyrar, hönnun aðveitu, dreifikerfis, dælustöðva og kyndistöðvar
- Íþróttahöllin á Akureyri. Burðarþols- og lagnahönnun
- Menntaskólinn á Akureyri – Hólar og Lundur (nemendagarðar). Lagnahönnun
- Íbúðablokkir við Mýrarveg. Burðarþols- og lagnahönnun
- Verslunarmiðstöðin Glerártorg. Burðarþols- og lagna hönnun, jarðtækni og mælingar
- Tengivirkihús og tengivirki á Rangárvöllum og í Krossanesi. Burðarþols- og lagnahönnun
- Fráveitukerfi Akureyrar, hönnun skólpdælustöðva og sértækra mannvirkja.
- Brú á Glerá, hönnun burðarvirkja
- Sæplast á Dalvík burðarþols- og lagnahönnun
- Íþróttahús á Ólafsfirði og í Varmahlíð, burðarþols- og lagnahönnun
- Brýr og vegskálar við jarðgangagerð, hönnun burðarvirkja
- Sundlaug á Hofsósi, burðarþols- og lagnahönnun
- Holtagarðar, hönnun vatnsúðakerfis
